"Slow city"

Kannski hefur þessi umræða um Akureyri sem "slow city" sbr. "slow food" gengið aðeins of langt! Gott er að búa við rólegheitin hér en við verðum nú að taka okkur á og reyna að halda okkur vakandi við aksturinn. Ég veit að þetta er grafalvarlegt mál en mér fannst nú frekar fyndið samt að hægt sé að sofna á Drottningarbrautinni. Annars er rólegheitaakstur þar sem hann á ekki við, eitthvað sem ég á afskaplega erfitt með að sætta mig við hér í þessum annars dásamlega bæ (og stefnuljósanotkunarleysið alræmda). Þá er ég að tala um keyrslu á 20-30 km hraða á stofnbrautum eða ökumenn sem eru svo í eigin heimi að þeir keyra mishægt eða hratt eftir því hvað þeir eru að horfa á eða við hvern þeir eru að tala. Lendi maður á eftir slíkum ökumönnum er vissara að vera vel á varðbergi!. Sumir jafnvel stöðva nærri því ef þeir sjá eitthvað sem þeim þykir spennandi, svona bara á miðri akbraut. Nei keyrum bara á jöfnum temmilegum hraða og reynum að muna að við erum hluti af heild, heild sem við tökum öll þátt í að gangi sem best fyrir sig.

Og lýkur þar með umferðarfræðslu Ingu DagnýjarSmile


mbl.is Bílstjórar sofnuðu við akstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband